Ploey – You Never Fly Alone will premiere at the European Film Market in Berlin on Friday, February 16 at CineStar 1 at 14:45. Second screening will be on Monday, February 19, at 16:20 at CineStar 4.
ARRI Media International handles world sales.
Ploey – You Never Fly Alone will premiere at the European Film Market in Berlin on Friday, February 16 at CineStar 1 at 14:45. Second screening will be on Monday, February 19, at 16:20 at CineStar 4.
ARRI Media International handles world sales.
PLOEY will be represented by ARRI Media at Lérins, L11 booth at Marché du Film in Cannes. There will be a special screening of 10 min of final footage on Saturday, May 20 at 12:00. The screening is private and by invitation only. Please contact Moritz Hemminger, Director of International Sales or Julia Pahl, Sales & Acquisitions Manager for getting on the invitation list.
Hilmar Sigurdsson, Producer of PLOEY and CEO of Sagafilm / GunHil will be in Cannes from May 18.-23. Please contact us for appointments.
Cartoon Movies will take place this year in Bordeaux in France and Ploey – You Never Fly Alone will be presented there as a project in production on Friday, March 10, at 16:00 in AMPHI A. New visual material will be presented by Árni Ólafur Ásgeirsson, Director and Hilmar Sigurdsson, CEO / Producer from GunHil, along with Ives Agemans Co-Director / Producer and Iris Delaforty from Cyborn and Julia Pahl from ARRI Media, who handles World Sales for the film.
Ploey is set to premiere in Reykjavik on December 26 with a special Gala Premiere on December 14. It will be Iceland’s first ever film to be delivered in Dolby Vision and Dolby Atmos.
ARRI Worldsales will continue to offer pre-buys for our upcoming animated feature film Ploey – You Never Fly Alone at the EFM in Berlin that starts on February 9. The film has already been pre-sold to around 30 countries, including Russia CIS, Baltics, China, S-Korea, Poland, Finland, Turkey, Middle-East and more.
If you are interested, please contact Moritz Hemminger, Director of Sales & Acquisitions of ARRI Media, MHemminger(a)arri.de, http://www.arriworldsales.de/
Our CEO, Hilmar Sigurdsson and Haukur Sigurjónsson will be at the EFM from February 10 to 14, please contact hilmar(a)gunhil.com or haukur(a)gunhil.com
Vinna við teiknimyndina “Lói – þú flýgur aldrei einn” gengur samkvæmt áætlun en nú eru Gunnar Karlsson listrænn stjórnandi og Árni Ólafur, leikstjóri í Belgíu þar sem þeir fara yfir stöðuna með Cyborn – teiknimyndastúdíóinu sem er meðframleiðandi myndarinnar. Teiknimyndin verður frumsýnd á Íslandi eftir ár, eða um jólin 2017.
Þessi æsispennandi saga um Lóa kom út nú í haust hjá Verlöld og við hvetjum ykkur til að næla ykkur í eintak. Lói – þú flýgur aldrei einn fjallar um lóu unga sem sem verður óvænt eftir á Íslandi þegar farfuglarnir fljúga suður á bóginn. Þá tekur við óvænt atburðarrás og ýmis ógnvænleg en líka skemmtileg ævintýri.
Myndskreyting bókarinnar er unnin af Sigmundi B. Þorgeirssyni – Simma, sem er búsettur í Oakville, Ontario í Kanada ásamt sambýliskonu sinni Lilju Hlín H. Pétursdóttur sem er þar í námi við Animation (Hreyfimyndagerð). Simmi lærði í Kaliforníu en lauk námi fyrir um ári síðan og flutti þá til Lilju sinnar.
Okkur langaði til að kynnast betur manninum á bak við myndir bókarinnar og sendum á hann nokkrar spurningar.
Hver er Simmi?
Simmi er frá Íslandi og elskar að teikna. Vel skeggjaður gaur með gleraugu á skökku nefi.
Hvernig er að búa í Kanada?
Það er mjög fínt! Veðrið kom mér á óvart, mjög heitt á sumrin en yfir veturinn er kaldara en á Íslandi – hef svo komist að því að steríótýpan um Kanadabúa er mjög sönn. Allir mjög vingjarnlegir og kurteisir og elska hokkí – meira að segja 10 ára Chihuahua hundurinn Sísí sem ég og Lilja ættleiddum er vingjarnlegasti hundur sem ég hef kynnst.
Er ákveðinn karakter bókarinnar í mestu uppáhaldi?
Uppáhalds karakterinn minn í Lóa bókinni er Karri. Hann á sér áhugaverða sögu og karakterinn hans er vel þróaður. Ég hlakka til að sjá hann sprella í teiknimyndinni.
Hvesu lengi hefur þú unnið sem sjálfstæður teiknari?
Ég hef starfað sem sjálfstæður teiknari frá 2012. Hef aðallega myndskreytt bækur en líka bókakápur, karaktera og ýmislegt skemmtilegt fyrir hin ýmsu fyrirtæki, s.s. Google, GunHil, Opera Software, Forlagið, Menntamálastofnun og fleiri.
Hvar lærðir þú?
Það tók mig tíma að finna hvað í fjáranum ég vildi læra. Tók síðan ákvörðun um að taka teikningu föstum tökum og skráði mig í glænýtt diplómanám Myndlistarskólans í Reykjavík í teikningu. Ég var í fyrsta hópnum sem útskrifaðist úr þessu námi árið 2012. Þar lærði ég margt og mikið um hvað teikning getur verið notuð í, s.s. hreyfimyndagerð, myndskreytingar, myndasögur og fleira.
Eftir útskriftina fór ég til Kalíforníu til að læra meira og stundaði nám í Laguna College of Art + Design þar sem ég útskrifaðist Summa Cum Laude árið 2015 með BFA gráðu í Illustration “with an emphasis on entertainment”…. með áherslu á skemmtiefni.
Var strax áhugi á þessu sviði?
Já, ég byrjaði snemma að teikna, skapandi klikkaðar bardagasenur, kópierandi Andrés Önd úr Syrpum og krotaði út allar skólabækurnar. Ég hef alltaf verið algjör alæta á allar sjónrænar listir, s.s. kvikmyndir, teiknimyndir og sérstaklega myndasögur. Allt sem innifelur í sér myndræna sögu.
Hvernig stóð á því að þú fórst að vinna að Lóa bókinni?
Ég var á höttunum eftir skemmtilegu verkefni í febrúar á þessu ári og það vildi svo vel til að á sama tíma var Gunhil að auglýsa eftir teiknara fyrir bókina. Ég sendi inn skeyti með vefsíðunni minni, ferilskrá og eftir gott samtal við Hilmar Sigurðsson þá fékk ég verkefnið.
Hvernig var að vinna að Lóa?
Mjög skemmtilegt! Þetta var krefjandi og lærdómsrík reynsla. Ég hafði ekki tekið að mér svona stórt verkefni áður en ég hef alltaf gaman af áskorunum. Allir sem komu að bókinni eru auðvitað svakalegir atvinnumenn svo þetta gekk vel fyrir sér. Textinn eftir Styrmi Guðlaugsson er fjörugur og lifandi – frábær fyrir myndskreyti – og þróunarvinna Gunnars Karlssonar, listræns stjórnanda teiknimyndarinnar var einnig góður innblástur.
Vinnur þú verkefnið skipulega, strax frá upphafi og koll af kolli eftir þróun sögunnar?
Já, það verður að vinna skipulega vegna stærðar verkefnisins – fjöldi myndanna var í kringum hundrað talsins ásamt kápu. Strax frá upphafi, eftir að hafa fengið smá búta af textanum frá Styrmi og karakter hönnun Gunnars, þá byrjaði ég að æfa mig að teikna karakterana og finna út hvernig þeir myndu líta út. Ég hef auðvitað minn eigin teiknistíl og er enginn meistari einsog Gunnar Karlsson svo ég vildi finna góða lausn á útlitinu og hafa allt flott eftir mínu höfði.
Verkferlið var svona – Fékk textann frá Styrmi – teiknaði grófar skissur í svarthvítu og setti upp þær upp í opnur ásamt texta til að sjá hvernig allt kemur út saman – sendi grófu opnurnar til allra til að fá álit – Hilmars, Styrmis og Bjarna Þorsteinssonar útgáfustjóra. Eftir athugarsemdir og breytingar byrjaði ég að fínteikna allar myndirnar og mála í tölvunni.
Hvað er framundan?
Það eru ýmis spennandi samstarfsverkefni í ofninum en ég er líka með mínar eigin sögur og hugmyndir sem ég ætla að vinna á nýja árinu. Gifting hjá okkur Lilju í sumar, Lilja útskrifast og dvölinni í Kanada er haldið áfram ásamt hundinum okkar Sísí. Ég held svo áfram að vera sjálfstætt starfandi teiknari og stefni á að fá vinnuleyfi hérna í Kanada.
Sagafilm, the leading independent production company in Iceland since 1978, will join forces with GunHil, a film production company that work includes some of the most expensive and cultivating animations in Icelandic history. Guðný Guðjónsdóttir will resign from her CEO position to pursue personal endeavors and will hand the reigns over to Hilmar Sigurðsson, who is currently the CEO of GunHil.
Sagafilm will acquire all outstanding shares in GunHil which shareholders join the shareholders roaster of Sagafilm. Árni Geir Pálsson, the Chairman of the Board of GunHil, will join the Board of Directors of Sagafilm.
The goal with the agreement is to strengthen and empower own film production and advancing Sagafilm’s international presence. Project coming from GunHil fit perfectly with the large slate of projects at Sagafilm. The company will have around 40 employees after the merger is fully carried through, estimated in Q2, 2017
Icelandic film production has been extremely successful in later years in both film and TV. Sagafilm’s own production CASE is up for the Best non-English-language drama series at The International Drama Awards, which will be handed out in London next week. The Series is now available to over 50 million subscribers as Netflix Original. Sagafilm has previously produced a long line of successful TV series, films and documentaries, as well as being a leader in commercial and production services.
GunHil is premiering the animated feature film ‘PLOEY – You Never Fly Alone at Christmas 2017. The film is a co-production with Cyborn of Belgium and ARRI Media handles international sales with over 40 countries already sold, including Russia CIS, S-Korea, China, Baltics, Poland and Turkey to name some.
GunHil will continue to operate as an independent company under the umbrella of Sagafilm and no immediate changes are in the plans. GunHil will continue to operate at its current location in Thverholt in Reykjavik and Lund, Sweden with Hilmar still serving as the Managing Director.
Sagafilm, elsta starfandi kvikmyndaframleiðslufyrirtæki landsins og GunHil, sem framleiðir nú aðra dýrustu teiknimynd Íslandssögunnar, hafa sameinað krafta sína. Guðný Guðjónsdóttir sem stýrt hefur Sagafilm undanfarin ár lætur af störfum að eigin ósk og leggur land undir fót. Hilmar Sigurðsson framkvæmdastjóri GunHil og annar stofnenda, tekur við sem forstjóri Sagafilm.
Sagafilm ehf. hefur keypt allt hlutafé í GunHil ehf. og frá og með 1. janúar 2017 munu félögin starfa undir sameinuðu eignarhaldi Sagafilm ehf. Hluthafar í GunHil ehf. verða frá þeim tíma hluthafar í Sagafilm.
Eftir að hafa starfað í 10 ár hjá Sagafilm, fyrst sem fjármálastjóri og síðustu ár sem forstjóri, hefur Guðný Guðjónsdóttir ákveðið að söðla um og hyggur á ferðalög ásamt fjölskyldu sinni um óákveðinn tíma. Hilmar Sigurðsson, sem hefur mikla reynslu af rekstri í skapandi greinum á Íslandi, Ítalíu og í Danmörku, tekur við sem forstjóri sameinaðs félags og mun jafnfram stýra GunHil, sem verður rekið sem sjálfstætt dótturfyrirtæki Sagafilm. Við sameininguna tekur Árni Geir Pálsson, stjórnarformaður GunHil sæti í stjórn Sagafilm.
Eflir íslenska kvikmyndagerð
Markmiðið með sameiningunni er að styrkja og efla eigin framleiðslu sem og sókn Sagafilm á erlenda markaði. Sagafilm hefur verið leiðandi á íslenskum kvikmynda-, sjónvarps- og auglýsingamarkaði í áratugi og undanfarin misseri hefur efni úr smiðju Sagafilm notið aukinna vinsælda erlendis. Spennuþáttaröðin Réttur 3 (CASE) er nú aðgengileg yfir 50 milljón áskrifenda Netflix víða um heim, auk þess sem fjöldi evrópskra sjónvarpsstöðva hefur tryggt sér sýningarrétt á henni. GunHil vinnur að framleiðslu „Lói – þú flýgur aldrei einn“, sem er tölvugerð teiknimynd fyrir alþjóðamarkað – nú þegar seld til sýninga í kvikmyndahúsum í yfir 30 löndum og verður jólamynd í kvikmyndahúsum á Íslandi 2017. Verkefni félaganna falla vel saman og munu starfsmenn Sagafilm ehf. vera um 40 talsins frá og með 1. janúar 2017.
Ragnar Agnarsson, stjórnarformaður Sagafilm kynnti sameininguna á starfsmannafundi hjá Sagafilm í morgun og sagði af því tilefni að ,,Sameining þessara tveggja, öflugu fyrirtækja mun tvímælalaust styrkja framleiðslu vandaðs, íslensks efnis, hvort sem um ræðir sjónvarpsþætti, kvikmyndir, auglýsingar eða efni fyrir aðra hratt vaxandi miðla. Það er tilhlökkunarefni að fá Hilmar og hans fólk til liðs við okkur, hann tekur við góðu búi af Guðnýju og við þökkum henni fyrir frábært samstarf undanfarin ár.”
Hilmar Sigurðsson, tilvonandi forstjóri segir: „Það er sérstaklega ánægjulegt að koma saman og leiða sterkt og öflugt framleiðslufyrirtæki í kvikmyndagreininni á Íslandi. Samþættingin gerir okkur kleift að takast á við enn stærri og viðameiri verkefni, styrkir efnahaginn og bætir framtíðartekjumöguleikana. Verkefni GunHil falla mjög vel að starfsemi Sagafilm og það er ljóst að íslensk kvikmyndagerð mun eflast enn frekar en orðið er.“
ARRI Media will bring brand new footage from the upcoming animated feature film “PLOEY – You Never Fly Alone” to the American Film Market that starts on November 2, in Santa Monica. ARRI’s booth at AFM is at Loews 627. The footage is available to selective buyers only. Meanwhile production is in full force in GunHil’s studio in Reykjavik and Cyborn’s Antwerp studio where dozens of professional work hard towards the late 2017 delivery deadline. Below is a still from the material that ARRI will bring to the market.
Ploey tells of af young plover that is unable to fly and migrate south when fall comes. He must survive the arctic winter, vicious enemies and learn to fly to be united with his loved ones next spring.
Veröld Publishers in Reykjavik are releasing in Iceland a new book that contains the original story of PLOEY – You Never Fly Alone.
From the book cover:
An unexpected incident causes Ploey the plover chick to be left behind when his very best friend Ploveria flies south with all the other migrating birds in the fall. Ploey is determined to fight for his life and be reunited with Ploveria in the spring. He faces countless challenges; Shadow the falcon is among other predators who want him dead, and not least the freezing arctic winter. With the help of new friends, he achieves the impossible – and then some!
A major international screen version of this this sweet and exciting story is currently in production, from the makers of Legends of Valhalla – Thor, the biggest Icelandic international box-office success in history.
The publishing day for the book is October 24, 2016. The book is available in Icelandic and English.
GunHil has signed a landmark contract for the company, marking the company’s first ever live action TV Series currently entitled ‘The Beacon’. A contract was signed with veteran writer Árni Thorarinsson who writes the 6 x 50′ series with Hallur Ingólfsson and Hjálmar Hjálmarsson.
The series are sets in Reykjavik in the 80’s and tells of young journalists battling corruption, serious business interests and themselves in a society that simply refuses to change. A very relevant topic in the wake of recent years in Iceland.
It is estimated that the series will be shot in 2017 with intended release in early 2018. RÚV – The Icelandic National Broadcasting Service has secured broadcasting rights in Iceland.
From the signing – from left: Hjálmar Hjálmarsson, Hallur Ingólfsson, Árni Thorarinsson, Hilmar Sigurdsson & Gunnar Karlsson.