Vinna við teiknimyndina “Lói – þú flýgur aldrei einn” gengur samkvæmt áætlun en nú eru Gunnar Karlsson listrænn stjórnandi og Árni Ólafur, leikstjóri í Belgíu þar sem þeir fara yfir stöðuna með Cyborn – teiknimyndastúdíóinu sem er meðframleiðandi myndarinnar. Teiknimyndin verður frumsýnd á Íslandi eftir ár, eða um jólin 2017.
Þessi æsispennandi saga um Lóa kom út nú í haust hjá Verlöld og við hvetjum ykkur til að næla ykkur í eintak. Lói – þú flýgur aldrei einn fjallar um lóu unga sem sem verður óvænt eftir á Íslandi þegar farfuglarnir fljúga suður á bóginn. Þá tekur við óvænt atburðarrás og ýmis ógnvænleg en líka skemmtileg ævintýri.
Myndskreyting bókarinnar er unnin af Sigmundi B. Þorgeirssyni – Simma, sem er búsettur í Oakville, Ontario í Kanada ásamt sambýliskonu sinni Lilju Hlín H. Pétursdóttur sem er þar í námi við Animation (Hreyfimyndagerð). Simmi lærði í Kaliforníu en lauk námi fyrir um ári síðan og flutti þá til Lilju sinnar.
Okkur langaði til að kynnast betur manninum á bak við myndir bókarinnar og sendum á hann nokkrar spurningar.
Hver er Simmi?
Simmi er frá Íslandi og elskar að teikna. Vel skeggjaður gaur með gleraugu á skökku nefi.
Hvernig er að búa í Kanada?
Það er mjög fínt! Veðrið kom mér á óvart, mjög heitt á sumrin en yfir veturinn er kaldara en á Íslandi – hef svo komist að því að steríótýpan um Kanadabúa er mjög sönn. Allir mjög vingjarnlegir og kurteisir og elska hokkí – meira að segja 10 ára Chihuahua hundurinn Sísí sem ég og Lilja ættleiddum er vingjarnlegasti hundur sem ég hef kynnst.
Er ákveðinn karakter bókarinnar í mestu uppáhaldi?
Uppáhalds karakterinn minn í Lóa bókinni er Karri. Hann á sér áhugaverða sögu og karakterinn hans er vel þróaður. Ég hlakka til að sjá hann sprella í teiknimyndinni.
Hvesu lengi hefur þú unnið sem sjálfstæður teiknari?
Ég hef starfað sem sjálfstæður teiknari frá 2012. Hef aðallega myndskreytt bækur en líka bókakápur, karaktera og ýmislegt skemmtilegt fyrir hin ýmsu fyrirtæki, s.s. Google, GunHil, Opera Software, Forlagið, Menntamálastofnun og fleiri.
Hvar lærðir þú?
Það tók mig tíma að finna hvað í fjáranum ég vildi læra. Tók síðan ákvörðun um að taka teikningu föstum tökum og skráði mig í glænýtt diplómanám Myndlistarskólans í Reykjavík í teikningu. Ég var í fyrsta hópnum sem útskrifaðist úr þessu námi árið 2012. Þar lærði ég margt og mikið um hvað teikning getur verið notuð í, s.s. hreyfimyndagerð, myndskreytingar, myndasögur og fleira.
Eftir útskriftina fór ég til Kalíforníu til að læra meira og stundaði nám í Laguna College of Art + Design þar sem ég útskrifaðist Summa Cum Laude árið 2015 með BFA gráðu í Illustration “with an emphasis on entertainment”…. með áherslu á skemmtiefni.
Var strax áhugi á þessu sviði?
Já, ég byrjaði snemma að teikna, skapandi klikkaðar bardagasenur, kópierandi Andrés Önd úr Syrpum og krotaði út allar skólabækurnar. Ég hef alltaf verið algjör alæta á allar sjónrænar listir, s.s. kvikmyndir, teiknimyndir og sérstaklega myndasögur. Allt sem innifelur í sér myndræna sögu.
Hvernig stóð á því að þú fórst að vinna að Lóa bókinni?
Ég var á höttunum eftir skemmtilegu verkefni í febrúar á þessu ári og það vildi svo vel til að á sama tíma var Gunhil að auglýsa eftir teiknara fyrir bókina. Ég sendi inn skeyti með vefsíðunni minni, ferilskrá og eftir gott samtal við Hilmar Sigurðsson þá fékk ég verkefnið.
Hvernig var að vinna að Lóa?
Mjög skemmtilegt! Þetta var krefjandi og lærdómsrík reynsla. Ég hafði ekki tekið að mér svona stórt verkefni áður en ég hef alltaf gaman af áskorunum. Allir sem komu að bókinni eru auðvitað svakalegir atvinnumenn svo þetta gekk vel fyrir sér. Textinn eftir Styrmi Guðlaugsson er fjörugur og lifandi – frábær fyrir myndskreyti – og þróunarvinna Gunnars Karlssonar, listræns stjórnanda teiknimyndarinnar var einnig góður innblástur.
Vinnur þú verkefnið skipulega, strax frá upphafi og koll af kolli eftir þróun sögunnar?
Já, það verður að vinna skipulega vegna stærðar verkefnisins – fjöldi myndanna var í kringum hundrað talsins ásamt kápu. Strax frá upphafi, eftir að hafa fengið smá búta af textanum frá Styrmi og karakter hönnun Gunnars, þá byrjaði ég að æfa mig að teikna karakterana og finna út hvernig þeir myndu líta út. Ég hef auðvitað minn eigin teiknistíl og er enginn meistari einsog Gunnar Karlsson svo ég vildi finna góða lausn á útlitinu og hafa allt flott eftir mínu höfði.
Verkferlið var svona – Fékk textann frá Styrmi – teiknaði grófar skissur í svarthvítu og setti upp þær upp í opnur ásamt texta til að sjá hvernig allt kemur út saman – sendi grófu opnurnar til allra til að fá álit – Hilmars, Styrmis og Bjarna Þorsteinssonar útgáfustjóra. Eftir athugarsemdir og breytingar byrjaði ég að fínteikna allar myndirnar og mála í tölvunni.
Hvað er framundan?
Það eru ýmis spennandi samstarfsverkefni í ofninum en ég er líka með mínar eigin sögur og hugmyndir sem ég ætla að vinna á nýja árinu. Gifting hjá okkur Lilju í sumar, Lilja útskrifast og dvölinni í Kanada er haldið áfram ásamt hundinum okkar Sísí. Ég held svo áfram að vera sjálfstætt starfandi teiknari og stefni á að fá vinnuleyfi hérna í Kanada.